Dómkirkja íslenskra tinda

Á Íslandi er ógrynni örnefna þar sem orðið kirkja kemur fyrir í nafnlið, og á það sérstaklega við um fjöll sem eiga sameiginlegt að svipa til tilkomumikilla kirkjubygginga. Má þar nefna Kirkjufell við Grundar- fjörð, nokkrar Tröllakirkjur og óteljandi Álfakirkjur. Í hlíðum Öræfajökuls, norðan ísfalls Svínafellsjökuls og mitt á milli Hvannadalshnjúks og Hrútsfjallstinda, er 1.695 metra hár tindur sem kallast Tindaborg en er einnig nefndur Fjallkirkja, Tröllakirkja og einfaldlega Kirkjan. Kirkjunafnið kemur ekki á óvart því tindur- inn minnir helst á kaþólska dómkirkju sem prýdd er óteljandi kirkjuturnum. Á sumrin sjást svartir hamraveggir Kirkjunnar vel úr Skaftafelli en á veturna er hún ekki síður tilkomumikil, klædd þykkri ísbrynju, ekki síst í návígi. 

Það er snúið að klífa Kirkjuna og aðeins á færi mjög vanra fjallamanna. Bergið er afar laust í sér og því ekki ráðlegt að klífa hana nema með ísklifurbúnað á snjó og ís, oftast frá mars og fram í maí. Nokkrar leiðir eru í boði að Kirkjunni og ekki nauðsynlegt að klífa sjálfan Kirkjuturninn, heldur má einfaldlega ganga í kringum hana. Algeng leið liggur upp austanverðan Svína- fellsjökul og síðan stefnt á vestari hlið Kirkjunnar og norður fyrir hana. Önnur leið liggur norður fyrir Hvannadalshnjúk og þannig komist að norðurhlíðum hennar. Loks má sveigja til vesturs af leiðinni upp á Hvannadalshnjúk og halda norðan Efri-Dyrhamars að austurhlíðum Kirkjunnar, en þar líkist hún helst hana- kambi. Síðustu 100 metrarnir upp á tindinn eru snúnir en norðausturhlíðarnar eru víða í kringum 60-70° og er þessi ísklifurleið með þeim erfiðustu á Íslandi. Efst á Kirkjunni er lítið pláss og því hvorki stund né staður fyrir mannfögnuði. Útsýnið er hins vegar frábært, ekki síst yfir að Hrútsfjallstindum, Hvannadalshnjúk og Efri-Dyrhamri. Á leiðinni heim geta sprækir spreytt sig á bröttum Efri-Dyrhamri en eftir það má halda niður á láglendi eftir sprungnum Virkisjökli eða enn fáfarnari Hvannadalshrygg. Þar sem ganga á hæsta tind Kirkjunnar getur tekið allt að sólarhring eru margir sem kjósa að slá upp tjaldi á leiðinni eða gista í snjóhúsi. Fyrir svefninn fara líklega flestir með bænir, enda getur verið stutt á milli feigs og ófeigs á þessari ókrýndu náttúrulegu dómkirkju Íslands.

 

Share on facebook
Deila á Facebook