Fjallalamb á Ströndum

Á Ströndum er aragrúi spennandi fjallstinda sem margir bera óvenjuleg nöfn eins og Glyssa, Örkin, Burstafjall og Pottfjall. Nafngiftin á hæsta fjalli Stranda, Lambatindur (854 m) er ekki jafn frumleg og varla lýsandi fyrir tind sem helst minnir á risapíramída, sérstaklega séður frá Gjögri og Veiðileysufirði. Það er aðeins suðausturhliðin sem ekki er snarbrött og gengur frá henni hryggur sem hægt er að þræða upp á tindinn. Síðasti hluti göngunnar  er töluvert klöngur og Lambatindur því alls ekkert lamb að leika sér við. Vant göngufólk ætti þó að ráða við þessa dagslöngu göngu og á sumrin þarf ekki jöklabúnað. 

Lagt er til atlögu úr Veiðileysufirði en þangað er 65 km keyrsla frá Hólmavík. Bílum er lagt austan megin Seljaár og síðan gengið meðfram ánni suður Seljadal. Í Seljá eru fallegir fossar sem gaman er að skoða en innar tekur tekur grjót við af gróðri. Er þá sveigt til austurs inn svokallaðan Þverdal fyrir suðurhlíðar Lambatinds. Í botni hans eru stöllóttar brekkur sem leiða upp á fjallið Skræling og er gengið af honum eftir áðurnefndum hrygg upp á Lambatind. Oft eru skaflar efst sem auðvelda gönguna en annars er undirlagið bæði stórgrýtt og laust í sér. Af tindinum sést ofan í nálæga jökulskorna dali en einnig sést vel í Reykjafjarðarkamb vestur af Gjögri, Drangajökul og jafnvel Hornbjarg. Í austur blasa síðan Kaldbakshorn og Húnaflói við. Þarna má hefði sennilega verið stúkusæti yfir Flóabardaga sem háður var 25. júní 1244. 

Þar börðust Sturlungurinn Þórður Kakali Sighvatsson með vestfirskan liðssafnað og sex hundruð Ásbirningar undir stjórn Kolbeins unga Arnórssonar, sem var þrefalt stærri her en Þórðar. Þrátt fyrir liðsmuninn tókst Þórði Kakala að verjast ofureflinu framan af en valdi síðan að flýja á land á Ströndum. Tókst Kolbeini unga ekki að ná í skottið á Þórði en fór í staðinn ránshendi um Strandir. Kolbeinn lést ári síðar og stuttu síðar náði Þórður Kakali fram hefndum og sigraði Ásbyrninga í einum mannskæðasta bardaga Íslandssögunnar á Dalsáreyrum í Skagafirði. Að lokinni upprifjun á Flóabardaga er haldið niður sömu leið, en í Norðurfirði bíður heit Krossneslaug í flæðarmálinu.

Share on facebook
Deila á Facebook