Fagurblár Langisjór er tvímælalaust ein dýrmætasta náttúruperla á hálendi Íslands.

Nafnið má rekja til lengdar vatnsins sem er 20 km, en þótt það nái 75 m dýpt er mesta breidd aðeins um 2 km

 

Stórbrotið umhverfi

Ekin er sérlega falleg leið frá Fjallabaksleið nyrðri inn að Sveinstindi við Langasjó

Fögrufjöll

Langasjó umlykja fallegir mógbergshryggir sem mynduðust við gos undir jöklum ísalda.  Þarna stela Fögrufjöll austan megin vatnsins algjörlega senunni en skammt undan er sjálfur Vatnajökull

Læknatindur

Suður af vatninu er Sveinstindur (1090m), frábært útsýnisfjall sem kennt er við Svein Pálsson lækni og náttúrufræðing sem var þarna á ferð sumarið 1794. Sveinstindur er vinsælt fjall til uppgöngu og tilvalin snörp dagsganga

Þorvaldur Thoroddsen

Það var hins vegar annar merkur náttúrufræðingur Þorvaldur Thoroddsen, sem gaf bæði Fögrufjöllum og Langasjó nafn árið 1889.  Þá blasti Langisjór við honum sem mórrautt jókullón og gekk skriðjökull niður í hann nyrst.  Þegar Síðujökull tók að hörfa á síðustu öld breytti kvísl úr Skaftá um stefnu og sveigði austur fyrir Fögrufjöll í stað þess að renna í Langasjó

 

Litaveisla

Við þetta varð Langisjór fagurblár á litinn og um leið eitt tærasta stöðuvatn landsins. Vötn austan við Langasjó eru einnig falleg á litinn, næstum sægræn, og mynda skemmtilega andstæðu við jökullitaða Skaftá

 

Ósnortið hálendi

Ganga má umhverfis Langasjó á 2-3 dögum með allt á bakinu. Þá verður að vaða Útfallið, affall Langasjávar sem rennur í Skaftá. Að öðru leyti er gangan þægileg og er gengið um vogskorin og mosavaxin Fögrufjöll sem skaga víða fram í vatnið með tilkomumiklum klettahöfðum.

Ást í Fagrafirði

Fiskur er í vatninu og þar er stunduð stangveiði en auk þess er Langisjór vinsæll fyrir kajaksiglingar. Er þá hægt að sigla umhverfis eyjuna Ást í Fagrafirði inn af Fögrufjöllum sem stendur undir nafni eins og allt umhverfið 

Sjón er sögu ríkari

Það er auðvelt að komast að Langasjó akandi og tilvalið að gista í skála Útivistar við Sveinstind eða sunnar í Skælingum eða Hólaskjóli