Urðarháls

Ein torfærasta fjallaleið á Íslandi er Gæsavatnaleið en hún liggur frá Tómasarhaga á Sprengisandsleið norð- an Vatnajökuls að Drekagili í Dyngjufjöllum. Flestir klöngrast Gæsavatnaleið akandi og er þá lagt upp frá skála Ferðafélags Íslands í Nýjadal, en þeir hörðustu þræða hana á nokkrum dögum gangandi eða á fjalla- hjólum. Á leiðinni er farið um Gæsavötn, yfir Dyngju- háls og fram hjá Kistufelli uns komið er að Urðarhálsi. Þetta er jökulsorfin grágrýtisdyngja sem nær 1025 m hæð og er eins og nafnið gefur til kynna stórgrýtt sem gerir 8 km langa leiðina yfir hálsinn að einum helsta far- artálma Gæsavatnaleiðar. En það borgar sig að klöngrast upp Urðarháls því efst er risastór sigketill sem er með helstu náttúruundrum Íslands. Þetta er svokallaður fall- gígur (pit crater) sem verða til í dyngjum þegar bergbráð tæmist úr þeim og skilur eftir storkið hraunþak sem síðan fellur saman. Sigketillinn á Urðarhálsi er engin smásmíði, eða 1100 m langur, 800 m breiður og hátt í 100 m að dýpt. Hann er jafnfram langstærsti fallgígur á Íslandi þótt hann eigi lítið í þekktustu fallgíga jarðar á Hawaii. Úr lofti sést hvernig gígurinn á Urðarhálsi er eins og stansaður í stórgrýtta dyngjuna með þver- hníptum brúnum sem geta verið varasamar, ekki síst í vetrarferðum.

Það er gaman að ganga í kringum sigketilinn á Urðar- hálsi og virða fyrir sér gímaldið í návígi. Útsýnið frá brúnum hans er af dýrari gerðinni og sést vel í risavaxna Trölladyngju beint í norður, austan við hana Dyngjufjöll og lengra í austur Snæfell og Kverkfjöll. Í suðri er Vatna- jökull með Bárðarbungu og enn nær Kistufell og vestarTungnafellsjökull.

Eftir gönguna á Urðarhálsi er haldið áfram austur Gæsavatnaleið að næsta farartálma, svokölluðum Flæð- um. Þar flæðir yfirborðsvatn af jöklinum út á svarta sanda, einkum síðdegis þegar hlýtt er í veðri. Á næstum 20 km löngum kafla þarf oft að aka nánast viðstöðu- laust í jökulvatni til að forðast að festast í aurbleytu. Flæðurnar geta þó þornað upp og þá birgja sandstormar oft útsýni. Smám saman er komið að Holuhrauni og síðan ekið meðfram því að Drekagildi í Dyngjufjöllum, rétt hjá Öskju. Gæsavatnaleið tekur daginn akandi og vel það, og því kærkomið að skella sér í göngu á grjót- hörðum Urðarhálsi. ■

Hjólað yfir Flæðurnar í átt að Urðarhálsi, en þennan dag voru þær að mestu þurrar og því auðveldar yfirferðar. Kistufell í baksýn.

Á Gæsvatnaleið er landslagið víða eins og á tunglinu, ekki síst í nágrenni Urðarháls.

Share on facebook
Deila á Facebook