Hringur um Hringsdal

Við sunnanverðan Arnarfjörð eru Ketildalir, röð stuttra dala sem einkennast af þverhníptum fjöllum með klettabeltum efst sem úr falla skriður alveg niður að sjó. Úr fjarlægð minna Ketildalir á dokkur i höfn, enda liggja þeir allir í norðaustur. Verdalir eru yst en síðan koma Selárdalur, Fífustaðadalur, Austmannsdalur, Bakkadalur, Hringsdalur, Hvestudalur og innst Auðihrísdalur, rétt utan við Bíldudal. Þarna var áður blómleg byggð, sérstaklega í Selárdal, en nú er aðeins heilsársbúseta í tveimur þeirra, Bakkadal og Hvestudal. Á milli síðastnefndu dalanna er Hringsdalur en þar er snoturt uppgert eyðibýli. Ofan þess er Hringsdalsnúpur (625 m), hæsti tindur Ketildala, en af honum er stórkostlegt útsýni yfir sunnanverða Vestfirði. Handan Arnarfjarðar sést vel í hæsta fjall Vestfjarða, Kaldbak (998 m) og Tjaldanesfjöllin austan hans. Einnig sést í Hornatær fyrir botni fjarðarins . 

Auðveldast er að ganga á Hringsdalsnúp að suðvestanverðu úr Hvestudal, en fyrst þarf leyfi ábúenda. Aðrar leiðir, eins og upp úr snarbröttum Hringsdal, eru mun torfærari. Þó er skemmtilegt að ganga inn þröngan dalinn meðfram Hringsdalsá með klettastálið beggja vegna og Lokinhamra og Kaldbak handan fjarðarins. Blágrýtislögin minna á stafla af pönnukökum en á milli þeirra finnast víða surtarbrandur og plöntusteingervingar. Á sumrin halda bjargfuglar til í klettunum en niðri í dalnum gleðja vaðfuglar göngufólk. Einnig má ganga meðfram ströndinni við Hringsdal þar sem ljós skeljasandur er skreyttur biksvörtum klettum. Þarna er æðafugl áberandi en stundum sést til skarfs og jafnvel álku og langvíu. Selir geta einnig skotið upp kollinum og úti á firðinum smáhveli. Ekki á óvart að  heiðnir menn hafi látið jarða þá látnu á svona stað. Kallast slíkir grafreitir kuml og hafa í kringum 320 fundist á 160 stöðum á landinu, þar af fimm í kumlateignum við nesið Hreggsnasa í Hringsdal. Á árunum 2005-2011 fór þarna fram uppgröftur og fundust m.a. beinagrindur en einnig ómetanlegt haugfé eins og spjót og sverð sem nú eru varðveitt á Þjóðminjasafninu. Ekki er vitað hvort heillegasta beinagreindin sé af landsnámsmanninum Hring en aldagamlar munnmælasögur sögðu hann hafa átt í  stöðugum útistöðum við Austmann frá Noregi sem vildi ná fram hefndum. Féllu þeir báðir í bardaga í Hringsdal og voru heygðir í Hringshugi og Austmannshaugi. Grafstæðið hefur örugglega verið Hringi að skapi, enda Hringsdalur með fallegustu stöðum á Vestfjörðum.

Share on facebook
Deila á Facebook