Gnúinn svörður Kollsvíkur

Kollsvík er nyrst svonefndra Útvíkna, sem eru yst á skaganum milli Patreksfjarðar og Breiðafjarðar, en vestar eru Breiðavík og Látravík, rétt norðan Látrabjargs. Í Útvíkum var áður blómleg byggð, sú vestasta á Íslandi og þar með í Evrópu. Kollsvík snýr í norðvestur og sérkenni hennar er einkar falleg ljós skeljasandsfjara, skrýdd svörtum klettum. Í ljóðinu Örnefni eftir Jón í Vör lýsir hann landslaginu svo: „Kollsvík með gnúinn svörð“. Innar tekur síðan við búsældarlegt undirlendi og ofan þess falleg dalverpi og heiðar. Í Landnámu segir að Örlygur Hrappsson, ásamt Kolli fóstbróður hans yfirgáfu Suðureyjar og héldu til Íslands. Lentu þeir í stormi og hét Örlygur á Patrek biskup til landtöku og náði Örlygshöfn við Patrkeksfjörð. Kollur hét hins vegar á Þór og “kom hann þar sem Kollsvík heitir og braut hann þar skip sitt,” Bjó hann síðan sem landnámsmaður í Kollsvík og upp frá því er talið að þarna hafi verið blómleg byggð og stundaður landbún- aður fram til 2002. Þarna var einnig ein stærsta verstöð á Vestfjörðum, enda örstutt í fengsæl fiskimið, og stundaðar veiðar allt fram til 1930. Við ströndina má víða sjá rústir gamalla vera og hýbýla.

Það er óhætt að mæla með heimsókn í Kollsvík og auðvelt að finna gönguleiðir við allra hæfi. Frá Hænuvík við sunnanverðan Patreksfjörð liggur akvegur í allt að 320 m hæð yfir Hænuvíkurháls og ofan í norðanverða Kollsvík. Þar er bærinn Kollsvík, annað tveggja fornra býla í Víkinni, þar sem leggja má bílum. Síðan er gengið út að ströndinni norðanverðri og sést vel hvernig ljós skeljasandur hefur borist hátt upp í fjallshlíðar með vindum af hafi. Smám saman blasir við tignarlegt fjall, Blakkur, en ysti oddi hans heitir Blakknes og rís 280 metra upp úr sjónum, og er Patreksfjörður handan hans. Þarna er sveigt til suðurs eftir nokkurra km langri strandlengju Kollsvíkur og stefnan tekin á hina fornu bújörðina, Láganúp. Á leiðinni sést í rústir Kollsvíkur- og Láganúpsvera og mannabústaða skammt frá ströndinni, en margar hleðslanna er afar haglega gerðar og mikið fyrir augað. Þarna má jafnframt finna elsta hús landsins til atvinnunota. Fyrir þá sem vilja lengri göngu má halda að Hreggnasa og upp á Hnífa syðst í víkinni, sjávarkletta með graslendi efst. Þaðan má halda í Vatnadal með tveimur snotrum stöðuvötnum og áfram yfir til Breiðuvíkur.

Share on facebook
Deila á Facebook