Foss sem varð ófær

Ófærufoss er tilkomumikill tvískiptur foss í Eldgjá að Fjallabaki. Hann var enn myndarlegri fyrir 1993 þegar risavaxin steinbrú yfir neðri fossinn hrundi í vorleysingum. Margir sakna steinbogans því þannig prýddi Ófærufoss ófáar auglýsingar sem skipuðu hann í hóp frægustu fossa landsins.  Það var síðan Hrafn Gunnlaugsson sem gerði Ófærufoss ódauðlegan í kvikmynd sinni Hrafninn flýgur frá 1984, en þar ríða víkingar á hestum yfir brothættan bogann, óvitandi um 9 árum síðar væri hann hruninn. Umhverfið í nágrenni Ófærufoss er ekki síður spennandi en fossinn sjálfur sem er staðsettur um miðja Eldgjá, 60  km langa gossprungu sem teygir sig frá Mýrdalsjökli að Vatnajökli. Norður af fossinum ber mest á Gjátindi (943 m) sem er frábært útsýnisfjall og sést vel at tindingum til Lakagíga, Mýrdalsjökuls og Sveinstinds við Langasjó. Eldgjá bíður síðan upp á litaveislu þar sem mest ber á rauðleitum og svörtum öskulögum sem stinga skemmtilega í stúf við iðagrænan mosa en einnig blátært vatnið í Nyrðri Ófæru, ánni sem fossinn dregur nafn sitt af. 

Eldgjá er engin smásmiði en við Ófærufoss er hún allt að 600 m breið og 200 m djúp. Þetta er ein stærsta gossprunga á Íslandi sem varð til í stórgosi skömmu eftir landnám 934 sem talið er að hafi staðið í nokkur á. Hraunið sem kom úr Eldgjárgosinu þekur 700 ferkílómetra, eða 0,7% landsins og er því með stærstu hraunum sem runnið hafa á sögulegum tíma á jörðunni. Það er auðvelt að komast að Eldgjá og Ófærufossi af Fjallabaksleið nyrðri, annað hvort úr Landmannalaugum eða sunnan úr Hólaskjóli. Á báðum stöðum eru skálar og tjaldstæði en einnig er má halda til í Skælingum eða Álftavatnakróki. 

Frá bílastæði í Eldgjá er aðeins 30 mín ganga inn að Ófærufossi en sprækt göngufólk ætti að velta fyrir sér að lengja gönguna og hefja hana í Hólaskjóli. Gaman er að ganga upp með fossinum og áfram vestur meðfram straumharðri Nyrðri Ófæru. Eenn skemmtilegra er að ganga upp úr Eldgjá á Gjátind en þangað má einnig komast á jeppa eftir slóða sem liggur meðfram brún Eldgjár. Á miðri leið býðst stúkusæti yfir að Ófærufossi og útsýnið örugglega ekki ósvipað og það sem býðst fljúgandi hröfnum. Þarna voru dýrustu sætin þegar steinboginn brast fyrir aldarfjórðungi síðan –  sem sannarlega var sorglegur atburður en fellur vel að örlögum foss sem kenndur er við ófærð.

Share on facebook
Deila á Facebook