Himneskar Helgrindur

Ofan Grundarfjarðar á Snæfellsnesi er hrikalegur fjallgarður sem heitir því kuldalega nafni Helgrindur. Þarna er oft stórviðrasamt og í mestu hvassviðrum hvín í Helgrindum eins og pípuorgeli og geta lætin heyrst alla leið niður í Grundarfjörð. En þótt nafnið sé fráhrindandi þá er ganga á Helgrindur frábær upplifun í góðu veðri og þær henta ekki síður fyrir vetrarferðir og fjallaskíði. 

Algengast er að hefja gönguna við bæinn Kálfárvelli, rétt áður en komið er að Búðum. Gengið er upp með Kálfá austan megin en í henni er fallegur foss. Fyrsta brekkan er býsna brött og því skynsamleg að notast við stafi og mannbrodda og ísöxi í vetrarferðum. Þegar komið er upp brekkuna tekur við nokkuð aflíðandi Kálfárdalur með litlum fossum og smátjörnum. Smám saman eykst brattinn og þá opnast stórkostlegur fjallasalur sem skartar fjöllum eins og Stakkfelli, Kambi og Erninum. Í vestri gnæfir síðan sjálfur Snæfellsjökull (1485 m).  Haldið er áfram í norður upp brekkur Helgrinda uns komið er að þremur hæstu tindunum, Böðvarskúlu (988 m), Tröllkerlingu (891 m) og Kaldnasa (986 m). Þarna blasir Breiðafjörðurinn skyndilega við í öllu sínu veldi en ekki er síður tilkomumikið að horfa ofan á Kirkjufellið og Grundarfjörð, og til austurs að Kolgrafarfirði. Á milli tinda Helgrinda er skarð þar sem hægt er að renna sér á fjallaskíðum niður norðurhlíðar fjallsins og má stundum renna sér alla leið að fossinum fræga við Kirkjufell. 

Þetta er með eftirminnilegri fjallaskíðabrekkum á Íslandi en er einnig mjög skemmtileg gönguleið að sumri. Flestir kjósa að ganga sömu leið til baka af Helgrindum að Kálfárvöllum en annar valkostur er að halda í vestur og norður af Böðvarskúlu og þaðan eftir hömrum girtum xxxxxxdal að veginum við Kvíárbryggju. Það eru tæpir 15 km að þvera Snæfellsnes yfir Helgrindur og tekur daginn með 1000 m hækkun. Ekki er ráðlegt að halda á Helgrindur nema veðurspá sé góð, enda fjallið mikið veðravíti eins og nafnið gefur til kynna. En í góðu veðri eru fáir staðir á Snæfellsnesi sem bjóða upp á jafn fjölbreytt landslag og útsýni – og himnaríki skammt undan.

Share on facebook
Deila á Facebook