Ísskápurinn á Öræfajökli

Öræfjajökull er annað stærsta virka eldfjall Evrópu og hefur gosið tvisvar á nútíma, fyrst 1362 þegar sveitin sunnan jökulsins, sem þá hét Litla Hérað, lagðist í eyði. Eftir það kallaðist héraðið Öræfi og eldfjallið eftir því, en 1727 gaus það öðru sinni en mun minna gosi. Efst er Öræfajökull hulinn jökli og niður hlíðar hans rennur fjöldi tilkomumikilla skriðjökla sem setja sterkan svip á þetta hæsta fjall Íslands. Askjan á miðju eldfjallsins er engin smásmíði, eða 7 km á breidd og ísinn allt að 550 m þykkur. Við eldgos yrði því um gríðarlegt leysingavatn að ræða sem sennilega myndu bætast ofan á kröftug gjóskuflóð líkt og í fyrri gosunum tveimur. Á barmi öskju Öræfajökuls raða sér hæstu tindar landsins, Hvannadalshnjúkur (2210 m), Sveinsindur (2044 m), Snæbreið (2036 m), Sveinsgnípa (1927 m), en líka Efri Dyrhamar (1917 m), Vestari Hnappur (1849 m), Eystri Hnappur (1758 m) og síðast og ekki síst Rótarfellshnjúkur (1848 m). Hann vill oft gleymast í þessum tindahópi en á alla athygli skilið, enda frábært útsýnisfjall sem sést víða að, m.a. af Skeiðarársandi. Best sést Rótarfellshnjúkur þó úr vestri af Sandfellsleið, algengustu gönguleiðinni á Hvannadalshnjúk, en hvít klakabrynja sem klæðir klettastálið minnir helst á ísskap sem þar að afþýða. Það er tiltölulega auðvelt að ganga upp á sjálfan tindinn með því að fylgja snjóhrygg í suður af öskjubarminum. 

Leiðin að uppgöngustaðnum getur hins vegar verið snúnari vegna jökulsprungna, sérstaklega við upptök Kotárjökuls sem getur verið krosssprunginn. Þess vegna er öruggast að fylgja Sandfellsleiðinni á Hnjúkinn en sveigja til austurs þegar komið er upp á öskjubarminn í stað norðvesturs á Hnjúkinn. Rótarfellshnjúkur er einnig tilvalinn fyrir fjallaskíði og brekkan niður Sandfellsleiðina með þeim lengri og skemmtilegri á Íslandi. Af tindi Rótarfellshnjúks er frábært útsýni yfir að Hvannadalshnjúk og Sveinstindi en einnig sést vel yfir Öræfasveitina og vestur yfir Skeiðarársand og Lómagnúp. Í aðalhlutverki og forgrunni er þó krosssprunginn Kotárjökull sem óneitanlega minnir á marensköku. Í austri sést síðan vel í Eystri Hnapp sem er eins og snævi þakinn píramídi á öskjubarminum. Reyndar er hægt að komast á Rótarfellshnjúk að austanverðu af svokallaðri Hnappaleið sem oft er farin á Hnjúkinn, en Sanfellsleiðin er þó hentugri og ústýnið enn tilkomumeira.

Share on facebook
Deila á Facebook