Jötnar á jökladeiti

Tindfjöll eru með fallegustu fjöllum á Íslandi en tveir hæstu tindar þessarar eldkeilu bera nöfn jötna; Ýmir sem er 1462 m og mun tilkomumeiri Ýma sem 12 metrum lægri. Báðir tindarnir sjást víða að og minna á hvítklætt par sem ákvað að hittast löngu áður en stefnumótasíður eins og Tinder komu til sögunnar. Kuldalegt parið er aðskilið með skarði sem úr fjarlægð líkist hengirúmi en umhverfis það er 20 ferkílómetra stór Tindfjallajökull og undir honum 5 km breið askja sem varð til við mikið sprengigos. Við rönd jökulsins er aragrúi tinda sem bera skemmtileg nöfn eins og Búri, Saxi, Haki, Hornklofi, Ásgrindur og loks þverhníptur Tindur (1251 m) sem fjöllin bera nafn sitt af. Norðaustan í jöklinum er síðan eldgígurinn Sindri. Upp á flest þessi fjöll príluðu Guðmundur frá Miðdal og fjallavinir hans sem byggðu þarna skála á fyrri hluta síðustu aldar en örnefnin skírskota flest til norrænnar goðafræði. Þannig var Ýmir fyrsti jötuninn í heimi og allir jötnar frá honum komnir, líkt og kýrin Auðhumla sem nærði hann með spenum sínum sem úr runnu fjórar fjórar mjólkurár. Barnabörn Ýmis hétu Óðinn, Vilji og Vé og sköpuðu þeir heiminn úr líkamsleifum hans eftir að hafa ráðið honum bana. Bjuggu þeir til lönd úr holdinu, himinn úr höfðukúpunni, blóðið varð að sjó og stöðuvötnum, bein og tennur að fjöllum, heilinn að skýjum og hárið að skógi. 

Flestir ganga á Tindfjöll úr vestri og er ekið eftir torfærum jeppavegi upp úr Fljótshlíð að nýuppgerðum Tindfjallskála Ísalp í 800 m hæð. Snemma vors er efsti hluti vegarins þó ófær óbreyttum jeppum vegna snjóa eða aurbleytu. Frá skálanum er haldið upp brekkur til austurs uns komið er í Skíðadal og síðan haldið áfram upp Búraskarð að jökulröndinni. Í fyrstu er jökullinn aflíðandi en þegar komið er að rótum Ýmis er best að halda norðaustan við fjallið og síðan þræða sig eftir hrygg upp á hæsta tindinn. Þaðan er gríðarlegt útsýni, m.a. að Eyjafjallajökli, Vestmanneyjum og Heklu. Í góðu veðri er tilvalið að ganga einnig á Ýmu sem er mun brattari tindur en af henni sést vel yfir Fjallabak og Laugaveginn en líka Mýrdalsjökul, Þórsmörk og Einhyrning. Ýmir og Ýma eru frábærar fjallaskíðaleiðir en frá Tindfjallaskála eru þetta 16 km fram og til baka. Á Sindra er hins vegar oftast gengið að norðanverðu en jeppavegur liggur norðan Tindfjalla og er vinsæl fjallahjólaleið.

Share on facebook
Deila á Facebook