Rauðanes

Við Þistilfjörð er Rauðanes, náttúrperla sem við fyrstu sýn lætur ekki mikið yfir sér en reynist við nánari skoðun luma á fallegum klettum skreyttum stuðla- bergsmyndunum við vogskorna strönd. Það er auðvelt að komast að Rauðanesi sem liggur 30 km vestan við Þórshöfn og álíka langt austur af Raufarhöfn. Skammtfrá þjóðveginum er bílastæði og þar er tilvalið að hefja 7 km langa göngu þar sem gengin er hringlaga gönguleið rangsælis. Þetta er þægileg ganga á jafnsléttu sem hentar bæði ungum sem öldnum.

Á Rauðanesi er afar fjölbreytt fuglalíf og upp af klett- unum er gróskumikill gróður. Sjósorfnar bergmyndanir stela athyglinni en þessir náttúrulegu skúlptúrar eru oftar en ekki skreyttir snotru stuðlabergi og birtast sem stapar, gatklettar, básar og víkur. Við klettana er mikið fuglalíf og oft sést til lunda en nafnið á einum klettanna er einmitt Lundastapi. Í seinni tíð ber þó meir á fýl og svartbak og innar á grónu nesinu smærri fuglum.

Á Rauðanesi er afar fjölbreytt fuglalíf og upp af klettunum er gróskumikill gróður.

Í göngunni um Rauðanes er komið við á Háabjargi sem rís allt að 60 m upp af ströndinni. Efst er einstakt útsýni yfir innanverðan Þistilfjörð og nágrenni en í góðu skyggni sést alla leið út á Langanes. Þarna eru tígullegir klettadrangar með falleg nöfn eins og Brík og Stakkar en sérkennilegast skúlptúrinn ber nafnð Gata- stakkur, Um er að ræða gamlan berggang sem úr fjar- lægð líkist risastóru handfangi með fallegu stuðlabergi. Skemmtilegasta nafnið ber þó Gluggur sem er fyrrum hellir þar sem innri hluti þaksins hefur hrunið og eftir stendur myndarlegur steinbogi. Annars staðar á Rauða- nesi eru heillegri hellar eins og í Stakkabásum en þar er hellisskúti þar sem nafnið Hannes hefur verið rist í bergið. Segir sagan að þarna hafi fyrir aldamótin 1900 leitað tveir sjómenn í sjávarháska og ritaði annar þeirra nafn sitt með vasahníf í hellisvegginn ásamt upphafs- stöfum félaga síns.

Á leiðinni heim er gengið eftir vegi sem liggur að bænum Velli en þar er ekki búið lengur. Að lokinni göngu um Rauðanes er tilvalið að skella sér í sund á Þórshöfn eða heimsækja Raufarhöfn og Kópasker á Melrakkasléttu

Share on facebook
Deila á Facebook