Reykjanesskagi ræskir sig

Ísland er eitt eldvirkasta svæði jarðar. Því veldur staðsetning landsins á flekaskilum en undir úthafshryggnum er einnig möttulstrókur eða heitur reitur sem miðlar bergkviku frá iðrum jarðar til yfirborðs. Alls eru hérlendis í kringum 130 eldfjöll í rúmlega 40 eldstöðvakerfum sem er ótrúlegur fjöldi miðað við stærð landsins og hér verða eldgos að meðaltali á 3–6 ára fresti. Tæplega tuttugu þeirra hafa gosið á nútíma en Grímsvötn, Hekla og Krafla eru þær eldstöðvar sem oftast hafa gosið. Rekbelti Atlandshafshryggsins liggur í gegnum Reykjanesskaga sem er nánast allur eldbrunnið svæði með fjölda eldfjalla og hraunbreiðum. Þarna hafa orðið fjölmörg forsöguleg eldsumbrot en þar til eldgos braust út í Geldingardal þann 19. mars sl. hafði ekki gosið á Reykjanesskaga í nær 800 ár. Þótt gosið þyki lítið er það einkar tilkomumikið. Um er að ræða hraungos sem hófst á um 500 m langri sprungu sem á eru nokkrir gígar og er einn þeirra langstærstur og stækkar jafnt og þétt. Út úr honum vellur 1200 gráðu heit kvika sem dreifist um botn Geldingardals.  Á fyrstu viku umbrotanna hefur hraunflæðið verið á bilinu 5-10 rúmmetrar á sek og hraunbreiðan, sem stöðugt þykknar og aðallega er helluhraun, þekur nú tvo hektara.

Það er ógleymanleg upplifun að sjá eldgos með eigin augum og gosið í Geldingardal er þar engin undantekning. Reyndar er þetta netta gos sérlega tilkomumikið því í fjöllunum sem umlykja Geldingardal er boðið upp á stúkusæti með frábæru útsýni yfir gosstöðvarnar. Þangað er auðveldast að komast af malbikuðum Suðurstrandavegi milli Grindavíkur og Ísólfsskála. Stefnt er á Nátthagakrika suðvestan gosstöðvanna og þaðan upp á Fagradalsfjallið. Gönguleiðin er ójöfn og sums staðar brött en var góðu heilli stikuð nú í vikunni. Stikaða leiðin að gosstöðvunum er nálægt 3,5 km og gangan tekur um 1,5 klst., en hún er er mun lengri (24 km báðar leiðir) ef leggja verður bílum við Grindavík. Aðrar en lengri gönguleiðir eru frá fjallinu Þorbirni við Bláa lónið, að norðan frá Keili eða austan úr Krísuvík. Þar sem Geldingardalur er afskekktur og gangan á fótinn yfir hraungrýti og ójöfnur þá er mikilvægt að vera vel búinn. Öflug ljós eru nauðsynleg fyrir kvöld- eða næturgöngu. Enginn ætti þó að að vera svikinn af þessu stórkostlega sjónarspili sem nú blasir við þegar Reykjanesið ræskir sig djúpt úr iðrum sínum eftir langan svefn.

Share on facebook
Deila á Facebook