Steinholtslón

Þótt Eyjafjallajökull sé sjötti stærsti jökull landsins og næstum 80 ferkílómetrar að stærð þá renna aðeins frá honum tveir skriðjöklar, Gígjökull og Steinsholtsjökull. Undir jökulhettunni er eldkeila sem gosið hefur fjórum sinnum frá landnámi, 920, 1612, 1821 og síðast 14. apríl 2010 í frægu gosi sem næstum eyddi Gígjökli. Steinsholts- jökull, sem er næsti nágranni Gígjökuls, má einnig muna sinn fifil fegri vegna loftslagshlýnunar. Hann felur sig á bak við voldugan jökulgarð og sést því ekki frá veginum inn í Þórsmörk, en þegar nær jöklinum er komið sést hversu stórbrotinn hann er. Steinsholtsjökull tengist einu mesta berghruni sem orðið hefur á Íslandi frá land- námi en aðeins það í Öskju sumarið 2014 var stærra. Um hádegisbil 15. janúar 1967 losnaði rúmlega 900 metra löng bergspilda úr fjallinu Innstahaus (720 m), en bændur höfðu um nokkurt skeið tekið eftir stækkandi sprungu í bergstálinu. Eftir miklar rigningar opnaðist sprungan og 40 milljónir tonna af bergi steyptust mörg hundruð metra niður á skriðjökulinn. Um leið köstuðust feikna- stór björg og jökulís yfir lón við jökulsporðinn sem kom af stað gríðarlegri flóðbylgju. Barst hún með látum eftir endilöngum Steinsholtsdal að aurum Krossár og þaðan áfram 40 kílómetra leið að ósum Markarfljóts. Þegar ekið er inn í Þórsmörk yfir vaðið á Steinsholtsá sést hversu stór björgin voru, en mörg eru nokkrar mannshæðir og allt að 200 tonn að þyngd. Sem betur fer voru engir á ferð í Þórsmörk þennan vetrardag en bændur sáu þó til flóðsins auk þess sem hamfaranna varð víða vart á jarð- skjálftamælum.

Ganga inn að Steinsholtsjökli er frábær skemmtun og tekur tæpa klukkustund hvora leið. Bílum er lagt við Fagraskóg, handan vaðsins á Steinsholtsá, en það getur verið varasamt í rigningu. Gróður í dalnum er afar gróskumikill og birki og mosi áberandi. Mikilvægt er að fylgja göngustígum og þræða gamla árfarvegi til að hlífa viðkvæmum mosanum. Innar í dalnum er þyrping risa- stórra sandhóla sem bárust með bergskriðunni og eru flestir þeirra grónir frá toppi til táar. Einnig má sjá jökul- ker sem mynduðust þegar jökulís úr flóðinu bráðnaði og skildi eftir stórar dældir í sandinum. Athyglinni stelur þó snarbrattur Steinsholtsjökull en frá 1967 hefur hann hörf- að um rúman kílómetra. Því má segja að hann hafi lent á milli steina berghruns og sleggju hamfarahlýnunar. ■

Share on facebook
Deila á Facebook