Titanic Sudursveitar

Birnudalstindur er 1396 m hár tindur í Kálfafellsfjöllum upp af Suðursveit, einn margra í sunnanverðum Vatnajökli. Úr suðri líkist hann helst sökkvandi skip, eins og skuturinn á Titanic stingist í hvítan sæ Vatnajökuls. Landslagið í kring minnir á Alpana þar sem skriðjöklar steypast niður þerhnípta dali þar sem tekur við net jökulfljóta sem líkjast kransæðum mannshjarta. Tilkomumestur er Kálfafellsdalur og inn af honum snarbrött Þverártindsegg (1544 m). Aðeins austar er ekki síður fallegur dalur, Staðardalur, og inn af honum Birnudalur. Þar opnast fjallaleikhús sem býður upp á sýningar af dýrari gerðinni. Best er að leggja til atlögu við Birnudalstind að vori til eða snemmsumars þegar snjór hylur brekkur sem annars geta verið lausar og erfiðar uppgöngu. Flestir gista á Hala eða Gerði í Suðursveit en þar fæddist og óx úr grasi rithöfundurinn Þorbergur Þórðarson (1888-1974). Mörg hans frægustu verk, eins og Steinarnir tala, eiga sér einmitt kveikju í kyngimagnaðri náttúru Suðursveitar. 

Frá Hala er ekið að Kálfafellskirkju en þaðan má með leyfi ábúenda aka jeppaveg að mynni Birnudals. Haldið er upp stöllóttar hlíðar sunnan Birnudalsár og áin stikluð eða vaðin ofan við fallega fossa. Smám saman blasir tignarlegur Birndudalstindur við og langar snjóbrekkur suður af honum. Þeim er fylgt upp að klettabelti neðan tindsins en síðan sveigt til vesturs upp á hrygg sem leiðir að skuti skipsins. Síðasta brekkan getur verið varasöm og sérstaklega þarf að gæta að snjóflóðum. Þarna býðst eitt stórkostlegasta útsýni á íslensku fjalli, m.a. ofan í Kálfafellsdal en einnig yfir að Öræfajökli með Sveintindi og Kaldárgnúpi (1406 m) og Kverkfjöllum í norðri. Í suðri blasir síðan við svört strandlengjan að Vestra Horni og Hornafirði. 

Af tindi Birnudalstinds bjóðast þrjár miskrefjandi leiðir og er algenasta að ganga eða skíða niður sömu leið til baka, samtals 15 km. Ef veður er gott og ekki hætta á snjóflóðum er hægt að þræða svokallaða tindaleið. Er þá fylgt eggjum tindanna milli Kálfafells- og Birnudals í suðvestur. Þetta er 21 km krefjandi ganga þar sem skynsamlegt er að hafa staðkunnuga með í för og styðjast við GPS-ferla, ekki síst til að finna rétta leið niður að Kálfafellskirkju. Þriðja leiðin hentar vel fjallaskíðafólki og er þá skíðað af toppnum niður eftir Skálafellsjökli að skálanum Jöklaseli. Þaðan liggur 16 km krappur jeppavegur niður að Smyrlabjargarvirkjun. Á leiðinni til Reykjavíkur er síðan tilvalið að skoða Þorbergssetur á Hala og kynnast betur meistara Þórbergi og hvernig mögnuð náttúra Suðursveitar mótaði hann sem rithöfund.

Share on facebook
Deila á Facebook