Að Fjallabaki er fjöldi náttúruperlna sem eru mörgum lítt kunnar. Engu að síður eru margar steinsnar frá fjölförnum viðkomustöðum eins og Landmannalaugum og Laugaveginum, einhverri frægustu gönguleið í heimi. Sumir þessara staða eru í felum og erfitt að komast að þeim nema gangandi
Þrennan
Þetta á þó ekki við um ljósbrúnt Laufafell og Laufavatn, snoturt vatn sem liggur við rætur þess og meðfram mosavöxnu Laufahrauni
Laufadrottning
Laufafell sést víða af vestanverðu Fjallabaki, enda 1.164 m hátt. Þetta er dæmigerður stapi með hamrabelti efst, líkt og Herðubreið og Hlöðufell, og að mestu leyti úr líparíti eins og svo mörg fjöll á Torfajökulssvæðinu
Ás í litaspili
Laufavatn er sannkallaður ás og bæði vatnið og umhverfið mikið litaspil
Snoturt hraun
Talið er að Laufahraun hafi runnið eftir landnám en nokkrir gíganna sem það rann úr eru fylltir vatni og kallast Grænavatn
Abstrakt listaverk
Mosavaxið Laufahraun er einstakt, ekki síst séð úr lofti
magnað Útsýni
Gengið er upp á Laufafell vestan megin. Af tindinum er frábært útsýni yfir að Hrafntinnuskeri og miðhluta Laugavegarins, en einnig Reykjadali sem státa af óteljandi gufuhverum í sundurskornum ljósum giljum. Í suðri blasa Mýrdalsjökull og Tindfjöllin við, og í vestri Rauðfossafjöll og sjálf Hekla
Falið hjarta
Við nánari skoðun má sjá í hlíðum Laufafells Hjarta Landsins vel falið í íslenskri mósaík
Dalakofi bíður
Tiltölulega auðvelt er að komast að Laufafelli á fjórhjóladrifnum bílum. Stefnan er tekin á vistlegan skála Útivistar sem heitir Dalakofi. Hann stendur í 750 m hæð rétt norðan fjallsins og er hann hitaður upp með jarðhita. Hægt er að velja um nokkrar leiðir í Dalakofann, m.a. tvær af Fjallabaksleið nyrðri eða að sunnanverðu af Fjallabaksleið syðri
Einstakt litaspil
Laufaþrennan að Fjallabaki svíkur engan og er svæði sem allir ættu að heimsækja