Náttúrulegt Gengissig

Í vestanverðum Kverkfjöllum er eitt öflugasta háhitasvæði landsins sem staðsett er í norðurjaðri Vatnajökuls í 1600-1700 m hæð.  Þarna eru tveir sigkatlar sem þar sem jarðhitinn hefur brætt  jökulísinn og heitir sá eystri því skemmtilega nafni Gengissig og sá vestari Galtárlón.  Gengissig er talið hafa myndast við jarðhræringar árið 1959 en líkt og Galtárlón tæmist það reglulega með tilheyrandi vatnavöxtum í nálægum jökulám, m.a. í Volgu sem kemur undan Kverkjökli og síðan áfram úr henni niður í Jökulsá á Fjöllum.  Þessi flóð geta komið skyndilega og krafturinn ógurlegur því fallhæðin niður Kverkfjöllin er mikil. Gengissig er öðruvísi örnefni en um það leyti sem lónið varð til sveiflaðist gengi íslensku krónunnar eins og hjartalínurit. Nafngiftina má þó fremur rekja til sífelldra breytinga á vatnsyfirborði lónsins en það er um 600 m breitt og í austri og suðri prýtt allt að 60 m háum ísveggjum. Stundum sést brotna úr þeim og fylgja því miklar drunur og dynkir sem gaman er að verða vitni að.  Það eru ekki margir staðir í  íslenskri náttúru sem breytast jafn mikið og Gengissig og oft verða ótrúlegar breytingar á milli ára. Þannig getur lónið verið fyllt blágrænu vatni og fljótandi ísjökum eitt sumarið en það næsta er það tómt og spúandi gufuhverir á botninum. Ekki spillir fyrir að örstutt frá Gengissigi er annar og ekki síðri gimsteinn, Efri Hveradalur. Syðst í honum er Galtárlón sem hljóp vorið 2019 og hefur síðan verið nánast tómt.

Það þarf gott veður til að heimsækja Gengissig, enda 10 klst. ganga fram og til baka og þarf að bæta við 1-2 klst ef í sömu ferð er farið ofan í Efri-Hveradal og vestari hluti Kverkarinnar skoðaður. Frá Möðrudal eru 100 km greiðfær jeppavegur í Kverkfjöll og er tilvalið að gista í Sigurðarskála eða slá þar upp tjaldi. Skemmtilegast er að ganga yfir Kverkjökul á mannbroddum að Löngufönn en einnig má ganga fyrir enda jökultungunnar. Langafönn er síðan skáuð upp að hábungunni í rúmlega 1800 m hæð. Allt í einu blasir Gengissigið við eins og stansað út úr jökulísnum og er haldið í áttina að Tunnuskeri þar sem er nettur skáli Jöklarannsóknarfélags Íslands. Hvergi á Íslandi er barátta elds og íss augljósari og náttúrufegurðin nánast ógnvekjandi – líkt og íslenska krónan á síðustu öld.

Share on facebook
Deila á Facebook