Eitt mest áberandi kennileiti á austurhluta Íslands er 1.833 m hátt Snæfell, enda hæsti tindur landsins utan jökla. Það sést víða af öræfunum norðan og austan Vatnajökuls en einnig alla leið frá Egilsstöðum. Þetta er gömul eldstöð sem ekki hefur látið á sér kræla síðan ísöld lauk

sveinsjökull

Á Snæfelli eru nokkrir smájöklar sem teygja sig niður hlíðar þess og skýra nafngiftina, en Sveinsjökull sem veit í norður er þeirra stærstur. Hvítklætt fjallið er einnig oft kallað Konungur íslenskra fjalla, sem er viðeigandi þar sem Drottningin Herðubreið er ekki langt undan á NA-öræfunum

gengið á konunginn

Ganga á Snæfell er frábær skemmtun og má hæglega ná sem dagsferð frá Egilsstöðum eða Atlavík. Við mælum þó frekar með að gista í vistlegum Snæfellsskála undir vesturhlíðum fjallsins þar sem einnig er ágætt tjaldstæði. Frá Egilsstöðum er um klukkutíma akstur á malbikuðum vegi að jeppaslóða sem liggur 20 km í suður að Snæfellsskála

 

alvöru ganga

Algengasta gönguleiðin hefst við rætur fjallsins suðvestanmegin, skammt frá skálanum. Fyrsti hluti leiðarinnar er stikaður og er gangan á færi flestra. Þó er mikilvægt að vera vel búinn því efst getur verið þokugjarnt og misviðrasamt. Einnig verður að hafa með jöklabúnað, enda síðari hluti leiðarinnar genginn á jökli

 

Ávalur tindur

Fyrst er gengið á göngustíg um mela en um miðbikið taka við lausar skriður og síðan jökull sem getur verið sprunginn efst. Eftir 3-5 stunda göngu er komið á ávalan tindinn sem býður upp á mikið útsýni, m.a. til Kverkfjalla, Herðubreiðar, Dyrfjalla, Lagarfljóts og Lónsöræfa. 

Eyjabakkar

Tilkomumest er þó útsýnið til austurs yfir Eyjabakka sem eru varpsvæði heiðagæsa en einnig sést oft til hreindýra í upphafi göngunnar

 

Erfiðari leiðir

Aðrar gönguleiðir á Snæfell eru tæknilega erfiðari eins og að halda beint upp frá skálanum í austur og er þá gengið á broddum yfir hálan og smásprunginn Axlarjökul

 

Spennandi jöklaganga

Enn skemmtilegri valkostur er jöklaganga upp norðurhlíðar Snæfells, en jökullinn á þessari leið er sprungnari, sérstaklega þegar líða tekur á sumarið

einstök fjallaskíðabrekka

Sama leið er frábær fjallaskíðabrekka í upphafi sumars þar sem oft má skíða langleiðina niður að veginum að Snæfellsskála

 

Klettaveggur austurhlíðar

Austan í Snæfelli eru miklir klettahamrar