Þríeyki gímalds

Í nágrenni Reykjavíkur er fjöldi tignarlegra fjalla sem setja sterkan svip á sjóndeildarhringinn. Þar eru Bláfjöll með helsta skíðasvæði höfuðborgarinnar engin undantekning. Vestur af þeim er hnúkaþrenning sem kallast Þríhnúkar og sjást víða að en best frá Bláfjallavegi vestan Rauðuhnúka. Þessir fallega sköpuðu gígar láta ekki mikið yfir sér í fyrstu, enda ná þeir ekki nema rétt rúmlega 550 m að hæð. Umhverfi þeirra er prýtt fallegum og úfnum svörtum hraunum sem á veturna eiga til að stinga sér í gegnum snjóþekjuna. Þegar gengið upp á hæsta gíginn, sem liggur næst Bláfjöllum, blasir skyndilega við hrollvekjandi trektlaga op Þríhnúkagígs, sem jafnframt er einn stærsti hellir landsins og telst til merkilegustu hraunhella í heimi.  Það var Árni B. Stefánsson augnlæknir og hellakönnuður  sem kannaði gíginn fyrstur þegar hann seig niður í hann á Jónsmessu 1974. Reyndust 120 m niður á söðullaga hrunbing á botni gígsins og gíghvelfingin þar rúmir 3000 fermetrar að flatarmáli. Frekari rannsóknir sýndu að á botni gígsins er hitastigið 2-3°C allan ársins hring og þegar kröftugum ljósum var beint að hellisveggjunum reyndust þeir skarta ýmsum litum með dumbrautt, gult og svart í aðalhlutverkum. Einnig fannst gosrás skáhallt niður frá botninum sem nær 204 m dýpt, en það eru næstum þrjár Hallgrímskirkjur mælt frá opi gígsins. Ofar í Þríhnúkagíg leynast fleiri útskot og minna sum þeirra á strompa. Í grein í Náttúrufræðingnum 1992 lagði Árni til nöfnin Háhnúk, Miðhnúk og Holhnúk á þríeykið en þau hafa ekki enn unnið sér sess.

Ganga að Þríhnúkum er þægileg  flestum og má hæglega ná á hálfum degi. Flestir velja að leggja bílum við Kóngsgil í Bláfjöllum en þaðan liggur greiðfær 4 km gönguslóði að hnúkunum og hækkunin óveruleg. Einnig liggur hjólaleið áleiðis að Hnjúkunum frá Hafnarfirði sem styttir gönguna. Af tindum Þríhnúkagígs er frábært útsýni yfir höfuðborgarsvæðið en einnig sést vel til Snæfellsness Akrafjalls, Esju og Móskarðahnúka. Hægt er að kynnast leyndardómum Þríhnúkagígs nánar, en sl. 8 ár hefur verið boðið upp á skipulagðar skoðunarferðir ofan í gíginn að sumarlagi. Á veturna er síðan gaman að ferðast á ferðaskíðum umhverfis Hnúkana og halda síðan ferðinni áfram um Grindarskörð að Brennsteinsfjöllum.

Share on facebook
Deila á Facebook