Hornvík er með stórkostlegustu stöðum á Íslandi, enda hjarta Hornstranda.  Hún er kennd við Horn, þverhnípt klettanes sem skagar í norður líkt og Hælavíkurbjarg vestan hennar

Hornbjarg

Þarna er eitt stærsta fuglabjarg landsins þar sem milljónir fugla halda til á sumrin, einkum langvía, álka, lundi og stuttnefja en einnig rita og fýll

Beint i norður

Enda þótt Hornvík snúi beint í norður, og oft sé stutt í hafís, þá er gróður þarna ótrúlega gróskumikill. Það gerir fugladritið auk þess sem ekkert sauðfé er í Friðlandinu. Í staðinn lífga sérlega gæfir refir upp á tilveruna. Fram undir miðja síðustu öld var búið á þremur bæjum í Hornvík, Horni, Höfn og Rekavík bak Höfn

 

Erfið lífsskilyrði

Hefðbundinn búskapur var stundaður við erfiðar aðstæður en veiðar í sjó og ám voru mikil búbót líkt og bjargfugl og egg sem sigið var eftir. Loks var hvönn soðin með mjólk til matar og reki nýttur sem eldiviður og til bygginga

 

Aðkoma á sjó eða landi

Frá Ísafirði, Bolungarvík og Norðurfirði á Ströndum er boðið upp á bátsferðir beint í Hornvík, en einnig má komast þangað gangandi með allt á bakinu, t.d. upp úr Veiðileysufirði yfir Hafnarskarð, eða í lengri göngu frá Hesteyri eða úr Reykjafirði nyrðri. Halda má til á tjaldstæði við eyðibýlið Höfn og leggja í ýmsar dagsferðir þaðan

 

Hornbjargsviti

Annar kostur er skáli Ferðafélags Íslands á Hornbjargsvita. Hægt ert að ganga frá vitanum yfir Kýrskarð í Hornvík eða halda fyrst út á Hornbjarg og þaðan niður í Víkina 

 

Fimm stjörnu tjaldstæði

Við Hornbjargsvita eru frábær tjaldstæði en einnig er hægt að gista í vitanum

 

Einstök gönguleið

Frá vitanum er gengið meðfram Bjarginu í átt að Horni.  Á leiðinni blasa við skemmtileg klettaþil

540 m

Hæsti Kálfatindurinn nær 540m hæð. Þeir sem ekki eru lofthræddir ættu að ganga upp á hann því efst er gríðarlegt úsýni yfir Húnaflóa, Hornvík og norðurhluta Hornstranda
 

 

Einstök upplifun

Á bjargbrúninni er lagst á magann og starað niður í brimið sem lemur bjargið nokkur hundruð metrum neðar. Þetta er mergjuð upplifun þar sem fuglagargið yfirgnæfir flest samtöl og fuglar þjóta hjá eins og orrustuþotur. 

 

hrikalegt þverhnípi

 Ótrúlegt nokk var hér sigið eftir eggjum!

Seiðandi bjarg

Frá Hornbjargi er stutt að bænum Horni og má ganga eftir Hornvík fram hjá Klifi að Kýrá. Hún er vaðin til þess að komast að Höfn, en einnig má halda yfir Kýrskarð aftur að Hornbjargsvita þar sem sofnað er við þægilegt fuglagarg