Allir þekkja Hvannadalshnjúk, hæsta tind landsins. Mun færri vita af bróður hans, Sveinstindi, sem rís upp eilítið austar og sunnar í brúnum Öræfajökulsöskjunnar, og flestir hafa séð af þjóðveginum austan Öræfajökuls
Annar hæsti
Sveinstindur er annar hæsti tindur landsins, 2044 metra á hæð og 66 metrum lægri en stóri bróðir. Talið er að Sveinn Pálsson læknir og náttúrufræðingur hafi gengið fyrstur manna á Sveinstind árið 1794 og ber tindurinn nafn hans Nokkrar leiðir eru í boði á Sveinstind, m.a. Ærfellsleið meðfram Hrútárjökli eða af Sandfellsleið á Hnjúkinn
Læknaleiðin
Leiðin sem Sveinn Pálsson er talinn hafa gengið er kölluð Kvískerjaleið og hefur stundum verið kölluð Læknaleiðin í minningu hans. Er þá lagt uppfrá Kvískerjum, frægu býli við austanverðan Öræfajökul, þar sem mest meðalúrkoma í byggð er á Íslandi
Öræfajökull þveraður
Hér er sagt frá leið þar sem Sveinstindur var toppaður á fjallaskíðum með því að þvera Öræfajökul, þ.e. gengin upp Sandfellsleið á Sveinstind og síðan niður Kvískerjaleið með viðkomu á Sveinsgnípu
Askjan þveruð
Gengið er langleiðina á Hnjúkinn, en á öskjubarminum er stefnan tekin í austur á Sveinstind í 7 km fjarlægð
Uppganga úr norðri
Gengið var uppá tindinn að norðanverðu sem er öruggari leið en sú að sunnanverðu
Skíðað niður
Af Sveinstindi var skíðað niður að Sveinsgnípu, sem er í ríflega 1900 m hæð, sem er ekki síður tilkomumikill tindur en stóri bróðir Sveinstindur
Magnað útsýni
Af Sveinsgnípu sést vel í tvo hæstu tinda landsins
Kvöldsól
Þetta var með eftirminnilegri kvöldum á fjöllum
útsýni til austurs
Útsýni yfir austanverðan Vatnajökul og sveitirnar sunnan og austan hans var einnig af dýrari gerðinni
Marengskaka
Leiðin liggur á milli sprunginna skriðjökla sem eru mikið augnayndi og minn helst á yfirborð marengsköku eða sprungulistaverk
Löng skíðabrekka
Síðan var Læknaleiðin skíðuð niður að Kvískerjum, en þetta er ein lengsta og jafnframt skemmtilegasta skíðabrekka landsins